FERÐAVEFIR

Vefsíðugerð – Sjálfvirkni – Ráðgjöf

Ferðavefir hafa það að megin markmiði að aðstoða ferðaþjónustufyrirtæki við að auka tekjur, einfalda verkferla, lækka rekstrarkostnað ásamt því að bæta samskipti við viðskiptavininn og með því auka rekstarhæfni.

Þjónustan

Mörkun

Ferðavefir hjálpa þínu fyrirtæki að skara fram úr, við blásum nýju lífi í vörumerkið þitt með skapandi hugsun. Litir, letur og málfar; allt eru þetta atriði sem segja sögu. Leyfðu okkur að segja þína og við sýnum viðskiptavinum þínum hvað það er sem aðgreinir þig í hardnandi samkeppni, með áhrifaríkri vörumerkjastefnu.

Vefsíður

Vefsíður eru andlit fyrirtækja og við sjáum til þess að þið sýnið ykkar bestu hliðar með einföldum og stílhreinum veflausnum. Við leyfum karakter ykkar að skína á sama tíma og við sköpum traust viðskipta vina ykkar með faglegum  og notendavænum vefum sem skila sér. Vefsíðurnar okkar eru að sjálfsögðu skalanlegar og eru jafn notendavænar hvort heldur í síma, spjald-, borð- eða fartölvu.

Hönnun

Árangur viðskiptavina okkar er alltaf fókusinn, hvort sem það er með logo-um, nafnspjöldum, bæklingum eða hverju sem hjálpar þínu fyrirtæki að ná til þíns markhóps. Tökum spjallið, skissum, prófum og vinnum okkur áfram þar til að allt smellur.

 

Ráðgjöf

Hjá okkur starfar fólk með áralanga reynslu af ferðaþjónustu sem stöðugt leitar lausna með virðisaukandi tækninýjungum sem einfalda daglegan rekstur. Við elskum ekkert meira en að búa til sterka ásýnd og aðgengilegt viðmót sem leiðir að sér sjálfvirkni og beinar bókanir, hvort sem það er fyrir afþreyingu, hótelherbergi eða veitingastaði.

 

ÁNÆGÐIR VIÐSKIPTAVINIR

“Þekking og reynsla Ferðavefja var lykilatriði í ákvörðun okkar um samstarf. Við vorum að hefja rekstur og völdum því að taka heildarlausn fyrir okkar fyrirtæki frá þeim. Ferðavefir sáu um að hanna ímynd og útlit fyrirtækisins frá A-Ö og útkoman fór fram úr okkar væntingum. Það var einnig mikill kostur að geta fengið allt sem við þurftum á einum stað. Ferðavefir hafa hjálpað okkur hjá Dís Cottages með stafrænar samskiptalausnir, ráðgjöf varðandi bókunarvélar og markaðsefni. Það sem stendur upp úr er sú öryggistilfinning að hafa fagfólk með reynslu og þekkingu á bak við sig.  Starfsmenn Ferðavefja skilja ferðaþjónustu og beiðnum um aðstoð hefur verið svarað fljótt og vel, ég gef Ferðavefjum mín bestu meðmæli”

Sæmundur Runólfsson
Eigandi Dís Cottages

„Við höfum fengið frábæra og faglega þjónustu hjá Ferðavefum frá því að við hófum viðskipti við fyrirtækið. Starfsmenn eru ávallt til reiðu ef spurningar vakna eða vandamál koma upp. Við erum mjög ánægðir með uppsetningu vefsíðu og allt sem lítur að tengingu við bókunarfyrirtæki „

Guðmundur
 Guðmundsson
Landsliðsþjálfari og eigandi Ármóta

 

„Við gefum Ferðavefum okkar bestu meðmæli. Öll vinna gekk smurt og faglega fyrir sig. Sunna var okkar kona í gerð upplýsingapósta og heimasíðu og við erum í skýjunum með hennar vinnu. Hún las fljótt staðinn og náði að fanga karakter hostelsins um leið. Við sjáum aukningu í beinum bókunum og með fallega uppsettum upplýsingapóstum hefur vinnuálag og álag vegna símhringinga minnkað til muna. Okkar bestu þakkir fyrir frábært samstarf.“

Benedikta Guðrún Svavarsdóttir

Hótelstýra Haföldunnar

 

“Kynni mín af vinnu Ferðavefja er skólabókardæmi um fagmennsku, viðbragðsflýti og með eindæmum góða og lipra þjónustu. Í raun fékk ég mun meira en “bara” nýja heimasíðu þar sem ýmsar þarfir fyrirtækis míns voru metnar, ég fékk mikil og góð ráð auk þess sem kynntar voru mismunandi leiðir að settum markmiðum. Allt saman gert í miklu samstarfi við mann sjálfan (kaupandann).”

Jakob E. Jakobsson
Eigandi og Framkvæmdarstjóri
Jómfrúnnar

 

Við hjá Hótel Fransiskus Stykkishólmi ákváðum að taka tilboði frá Ferðavefum þegar gera átti nýjan vef fyrir fyrirtækið. Ástæðan fyrir því vali var eingöngu vegna þess að þeir hafa sérhæft sig í vefjum fyrir íslenska ferðaþjónustu. Samskiptin gengu afar vel, athugasemdir unnar hratt og örugglega og alltaf var leitast við að uppfylla óskir okkar sem viðskiptamanns. Öll vinnan við vefinn ásamt eftirfylgni var til fyrirmyndar og greinilegt að þar er fagfólk að verki.

Unnur Steinsson
Framkvæmdastjóri / hótelstýri Hótel Fransiskus

VIÐ ERUM FERÐAVEFIR

Benedikt Viggósson

Benedikt Viggósson

Framkvæmdastjóri

Auðbergur Gíslason

Auðbergur Gíslason

Hönnuður

Björn Ísak Benediktsson

Björn Ísak Benediktsson

Fjármálafulltrúi

SAMSTARFSAÐILAR OKKAR

Við erum svo heppin að hafa unnið með frábærum og framúrskarandi fyrirtækjum. Fáðu ókeypis ráðgjöf og þá er aldrei að vita nema það verði byrjunin á frábæru samstarfi.

Skráðu þig á póstlista!

Við sérhæfum okkur í lausnum fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu. Fáðu upplýsingar um og góð ráð um ýmislegt sem viðkemur rekstri í ferðaþjónustu.

Sláðu á þráðinn

554-5414

Sendu okkur línu

hjalp@ferdavefir.is

Spjallaðu við okkur

á Facebook Messenger

VIÐ viljum heyra frá þér
SEGÐU HÆ!

Ekki hika við að senda okkur línu ef þú ert með einhverjar vangaveltur.

Ég hef áhuga á